|
|
Volkswagen fréttir.
| 20/01/2012 I Nýjungar Volkswagen Passat valinn bíll ársins Bandalag íslenskra bílablaðamanna, BÍBB, tilkynnti um val á bíl ársins 2012 í húsakynnum Blaðamannafélags Íslands föstudaginn 2. sept 2011. Að þessu sinni var það Volkswagen Passat í metanútfærslu sem hlaut verðlaunin „Bíll ársins 2012“. Volkswagen Passat fær því verðlaunagripinn Stálstýrið 2012. Audi A1 var valinn Bíll ársins í flokki smærri fólksbíla.
Bílar sem gjaldgengir voru í keppnina að þessu sinni voru bílar sem höfðu komið á markað hér á landi frá ágúst 2010. Dómnefnd tók tillit til aksturseiginleika, afkastagetu, eldsneytisnotkunar, visthæfi, öryggisbúnaðar, útlits og hönnunar bílanna og endursöluvirðis svo nokkuð sé nefnt.
Í Volkswagen Passat er hugsað um hvert smáatriði þegar kemur að hönnun, þægindum og öryggi. Passat er ríkulega búinn staðalbúnaði og er einstaklega rúmgóður og þægilegur í akstri. Einnig er í boði fjölbreytt úrval aukahluta og tækni sem einkennt hefur Volkswagen sem nýjungagjarnan framleiðanda. Fimm stjörnu eiknunn VW Passat í árekrarprófun Euro Ncap staðfestir þá stefnu Volkswagen að öryggið sé ávallt í forgangi.
Volkswagen Passat EcoFuel notar metangas sem aðal orkugjafa en einnig er hann með 31 lítra bensíntak. Hámarksdrægni á metangasi er um 450 km og 430 km á bensíninu. Þannig er hægt að aka 880 km að hámarki án þess að fylla á eldsneytið sem er vel ríflega vegalengdin frá Reykjavík til Akureyrar og til baka. Metangas er unnið úr lífrænum úrgangi á Íslandi og nær allt að 98% hreinleika, sem gerir það að einum umhverfisvænasta orkukostinum. Metangas er mun ódýrara eldsneyti heldur en bensín og dísil. Árlegur sparnaður getur numið um 100.000 krónum m.v. 15.000 km akstur á ári. Einnig fá metanbílar frítt í stæði í Reykjavík þannig að ávinningurinn er margvíslegur.
“Volkswagen Passat verðskuldar fyllilega að vera valinn bíll ársins 2012 á Íslandi. Þetta er flottur bíll á frábæru verði og einstaklega sparneytinn. Metan útfærslan mælist vel fyrir og er umhverfisvæn og nýtir íslenskt eldsneyti sem er góður kostur. Vélin í Passat EcoFuel er sérhönnuð til brennslu á metani, enda er brunahiti vélarinnar hærri við brennslu metans heldur en á bensíni“. Segir Friðbert Friðbertsson forstjóri HEKLU.
Marinó Björnsson sölustjóri Volkswagen er ánægður með árangurinn: „Volkswagen Passat hefur verð einstaklega farsæll síðan hann kom á markað árið 1973. Núna er sjöunda kynslóð Passat komin á markað sem er stórglæsilegur bíll í alla staði. Glæsileg hönnun, einstakir aksturseiginleikar með sparneytni og öryggi í hæsta gæðaflokki. Það kemur mér því ekki á óvart að hann fái þessa viðurkenningu. Volkswagen hefur unnið þessi verðlaun sl. tvö skipti sem þau hafa verið veitt, en Volkswagen Tiguan vann síðast“. Sagði Marinó að lokum.
Úrslit í vali á bíl ársins 2012 voru eftirfarandi:
Í flokki smærri fólksbíla sigraði Audi A1. Í flokki vistvænna bíla sigraði Volkswagen Passat EcoFuel. Í flokki stærri fólksbíla sigraði Volvo S60
Bíll ársins 2012: Volkswagen Passat EcoFuel |
| 17/01/2011 I Mótorsport I Volkswagen ber sigur úr býtum í Dakarrallinu Volkswagen ber sigur úr býtum í Dakar rallinu Volkswagen einokaði toppsætin í ár því það voru einnig keppnislið frá Volkswagen á Touareg Race 3, sem urðuu í öðru og þriðja sæti. De Villiers og Von Zitewitz hlutu annað sætið og Carlo Sainz siguvegarinn 2010, ásamt aðstoðarmanni sínum Cruz, lentu í því þriðja.
Volkswagen er því ósigrað í Suður-Ameríku en Dakar rallið var flutt þangað fyrir þremur árum vegna ófriðar í sumum Afríkuríkja. Auk þess er Volkswagen eini framleiðandinn sem hefur unnið rallið á bílum sem knúnir eru dísilvélum. Má því segja að sigur Volkswagen í þessari erfiðustu akturskeppni í heimi, sé enn ein rósin í hnappagatið fyrir TDI dísiltæknina hjá Volkswagen.
|
| 09/11/2010 I Nýjungar I Nýr Passat kynntur á alþjóðlegu bílasýningunni í París Nýr Passat kynntur á alþjóðlegu bílasýningunni í París Volkswagen kynnti nýjan Volkswagen Passat á alþjóðlegu bílasýningunni í París nýverið. Framleiðsla á þessum vinsæla millistærðarbíl hófst fyrst árið 1973 og hafa yfir 15 milljón eintök verið seld af Passat fram á þennan dag. Nýi Passatinn er sjöunda kynslóð þessa bíls og hefur aldrei verið jafn mikið lagt í bílinn. Fjölmargar tækni- og öryggisnýjungar eru í nýja bílnum, sem eflaust munu vekja athygli bílaáhugamann víðs vegar um heiminn.
Nýr Volkswagen Passat verður kynntur fyrst í Evrópu um miðjan þennan mánuð. Reiknað er með að HEKLA muni kynna nýjan Volkswagen Passat hér á land um mánaðarmótin nóvember/desember. |
| 05/11/2010 I Annað I Volkswagen Passat í heimsmetabók Guinness Volkswagen Passat í heimsmetabók Guinness Breski blaðamaðurinn Gavin Conway frá The Sunday Times setti nú á dögunum sérstakt heimsmet. Hann ók á Volkswagen Passat BlueMotion á einum tanki eða 72 lítrum heila 2.459 kílómetra. Þetta er lengsta vegalengd sem fjöldaframleiddur bíll hefur farið á einum eldsneytistanki. Meðaleyðslan hjá blaðamanninum voru 3,13 lítrar á hverja hundrað kílómetra. Ekið var í Suður Frakklandi, bæði í borgum og á hraðbrautum, en veglengdin samsvarar því að ekið sé frá London til Malaga eða frá New York til Los Angeles á einum eldsneytistanki.
Sérstakur eftirlitsaðili frá Guinness heimsmetabókinni fylgdist með í ferðinni og hefur metið verið staðfest. Passat bifreiðin sem Conway ók, var sem áður segir af Volkswagen Passat BlueMotion gerð með 1.6 TDI 105 hestafla dísilvél. |
| 04/03/2010 I Fyrirtækið I HEKLA afhendir tvo nýja veltibíla HEKLA afhendir tvö nýja veltibíla HEKLA, umboðsaðili Volkswagen hér á landi, annast alla þjónustu við veltibílana sem verða í eigu Forvarnahússins annars vegar og Brautarinnar – bindindisfélags ökumanna, Sjóvár og Umferðarstofu hins vegar. Samstarf þessara aðila hefur staðið í 15 ár og eru þetta fjórði og fimmti veltibíllinn sem koma til landsins fyrir tilstuðlan HEKLU og Volkswagenverksmiðjanna. Þeir eru af gerðinni Volkswagen Golf og verða nýttir við ökukennslu og umferðarfræðslu fyrir ökumenn um allt land.
15 ára árangursríkt samstarf um mikilvægi notkunar bílbelta Fyrsti veltibíllinn kom til landsins í maí 1995. Hann var í notkun í fimm ár og prófuðu um 100 þúsund einstaklingar hann. Um 82 þúsund manns prófuðu veltibíllinn sem var í notkun frá 2000 til 2005 og yfir 66 þúsund manns hafa prófað þriðja veltibíllinn sem tekinn var í notkun árið 2005 og verður nú leystur af hólmi af nýju bílunum tveimur. Samtals hafa því um 250 þúsund manns prófað að fara í veltibíl frá því verkefnið hófst.
„Veltibílinn er gríðarlega mikilvægt tæki í baráttunni fyrir aukinni bílbeltanotkun. Bílbeltin hafa margsannað gildi sitt og það er afar gleðilegt að Volkswagen og HEKLA skuli styðja baráttuna með þessum hætti,“ segir Guðmundur Karl Einarsson, framkvæmdastjóri Brautarinnar-bindindisfélags ökumanna.
Ökunemar skyldugir að fara í veltibíl Ástæða þess að tveir veltibílar leysa nú af hólmi þann gamla er að allir ökunemar eru nú skyldaðir til að prófa veltibíl í ökunáminu og er notkun veltibíls þar með orðinn hluti af almennu ökunámi hérlendis.
„Meginmarkmiðið með veltibílunum er að kynna ökumönnum hversu mikilvægt er að nota alltaf bílbeltin því slysin gera ekki boð á undan sér,“ segir Lárus Ásgeirsson, forstjóri Sjóvár. „Ökumenn fá t.d. að reyna hvernig er að komast út úr bíl sem hafnað hefur á hvolfi en útafakstur er algengasta orsök slysa í umferðinni í dag. Um 4% umferðaróhappa í fyrra voru vegna útafaksturs og hátt í þriðjungur þeirra sem slösuðust í umferðinni í fyrra, eða um 750 einstaklingar, slösuðust í útafakstri. Án veltibílanna gætum við ekki sýnt fram á mikilvægi bílbeltanna á jafn áhrifaríkan hátt og kunnum við HEKLU og Volkswagen bestu þakkir fyrir þeirra höfðinglega framlag til umferðaröryggismála.“
Bílvelta sviðsett á Hekluplaninu „Okkur er það mikið ánægjuefni að styðja við forvarnarstarf í umferðinni með þessum hætti,“ segir Knútur G. Hauksson, forstjóri HEKLU, í tilefni af afhendingu nýju veltibílanna. Við það tækifæri var jafnframt sviðsett bílvelta á planinu hjá HEKLU þar sem myndavélum var komið fyrir inni í gamla veltibílnum, sem orðinn er úreltur, til að sýna hvaða hætta bílstjórum og farþegum getur stafað af lausum munum þegar bílar velta eða lenda í árekstri.
„Lausir munir geta haft mjög alvarlegar afleiðingar í bílveltu eða árekstri,“ segir Knútur og bendir á, því til áréttingar, að þyngd 200 gramma farsíma samsvari t.d. um 26 kg ef bíll lendi í árekstri eða velti á 90 km hraða! „Það er mikilvægt að bæði ökumenn framtíðarinnar og við sem erum með bílpróf í dag áttum okkur á þessum hættum,“ segir forstjóri HEKLU.
|
| 09/12/2009 I Nýjungar I Nýr Polo: Bíll ársins! Nýr Polo: Bíll ársins Alþjóðleg dómnefnd skipuð 59 sérfræðingum frá 23 Evrópulöndum hefur valið VW Polo Bíl ársins 2010. Enn ein rós í hnappagat Volkswagen á gjöfulu ári fyrir nýjan Polo.
“Ný gerð Polo felur í sér þýska verkfræðikunnáttu og tækni eins og hún gerist best. En um leið er Polo frísklegur, nútímalegur og heimsborgaralegur bíll. Við hönnun á fimmtu kynslóð Polo var það haft í forgrunni að væntingum viðskiptavina yrði mætt án þess að grípa þyrfti til málamiðlana á nokkru sviði. Þess vegna erum við að sjálfsögðu afar ánægðir með að afrakstur okkar vinnu hljóti núna þessa viðurkenningu," sagði Martin Winterkorn, formaður framkvæmdastjórnar Volkswagen samstæðunnar við þetta tilefni.
Bíll ársins er ein elsta og virtasta viðurkenningin sem bílaframleiðendum hlotnast í Evrópu. Allt frá árinu 1964 hefur besti bíllinn af öllum nýjum gerðum verið valinn á ári hverju. Volkswagen varð síðast fyrir valinu árið 1992. Þá bar þriðja kynslóð Golf sigur úr býtum.
Í valinu að þessu sinni greiddu 59 dómnefndarmenn frá 23 Evrópulöndum atkvæði. Nýr Polo sigraði með 347 stigum en í næsta sæti varð Toyota IQ. Hakan Matson, forseti dómnefndarinnar hafði orð fyrir dómnefndarmönnum þegar úrslitin voru kynnt á hátíðarsamkomu í Madrid: "Það sem gerði útslagið var yfirgripsmikill öryggisbúnaður bílsins og mikið úrval véla. BlueMotion-gerð Polo gerði það síðan að verkum að einnig er hægt að nefna að bíllinn er afar sparneytinn og um leið hagstæður í kaupum," sagði Matson.
Valið á Polo sem Bíll ársins 2010 er áframhald á óvenjulegri sigurgöngu á árinu sem er að líða. Hið virta bílablað "auto motor sport" hefur þegar valið Polo "Besta bílinn 2009" og bíllinn hlaut einnig Græna og Gullna stýrið sem eru verðlaun sem Springer-útgáfan í Þýskalandi veitir. Þá hlaut Polo ennfremur "Auto Trophy" fyrir fáeinum dögum, sem tímaritið "Autozeitung" veitir.
Viðskiptavinir hafa ekki síður hrifist af nýjum Polo en dómnefnd í vali á Bíl ársins. Bíllinn kom á markað í maí á þessu ári og nú þegar hefur Volkswagen tekið á móti pöntunum í 130.000 bíla. Polo er framleiddur í þrennra og fimm dyra útfærslum í Þýskalandi. Polo BlueMotion, sem eyðir einungis 3,3 lítrum, er sparneytnasti og umhverfisvænasti fimm sæta bíll í heimi.
HEKLA mun á næstu vikum kynna nýjan Polo, en nú þegar er hægt að panta bílinn hjá sölumönnum Volkswagen.
|
| 02/01/2009 I Nýjungar I Besti Golfinn Nýr Volkswagen Golf Nýr Volkswagen Golf var frumsýndur í húsakynnum HEKLU, Laugavegi 172-174 8. maí n.k. Golf hefur selst í yfir 26 milljónum eintaka og er vinsælasti bíll Evrópu. Nýr Golf er endurbættur á öllum sviðum. Sjötta kynslóð Golf endurskilgreinir kröfur sem gerðar eru til gæða og þæginda á breiðu sviði í þessum stærðarflokki og kaupendur hans fá meira fyrir peningana en nokkru sinni áður. |
| 13/11/2008 I Fyrirtækið I Verðlaun Volkswagen samsteypan fær 4 gullin stýri
Ein verðlaun voru veitt í hverjum stærðarflokki en að þessu sinni vann Volkswagen samsteypan, sem samanstendur af Volkswagen, Audi, Seat, Skoda, Bentley, Bugatti og Lamborghini, til hvorki meira né minna en verðlauna í fjórum af fimm stærðarflokkum. Hinn nýi Volkswagen Golf VI sem kynntur var á risablaðamannakynningu á Íslandi í september hlaut Gullna stýrið í minni fólksbílaflokki. Í millistærðarflokki var það hinn nýi Skoda Superb og í flokki jeppa og jepplinga var það lúxusjepplingurinn Audi Q5.
Allir þessir bílar verða kynntir hér á landi á næsta ári. Einnig voru veitt verðlaun í flokki smábíla og þar bar Seat Ibiza sigur úr býtum.
Græna stýrið, sem eru sérstök umhverfisverðlaun, féll að þessu sinni í skaut Mercedes-Benz fyrir BlueTec-System tæknilausnir fyrir dísilvélar.
Þetta er gríðarlega góður árangur hjá Volkswagen AG sem er í dag orðinn einn stærsti bílaframleiðandi í heimi.
|
| 30/08/2008 I Sýningar I Frumsýning Passat CC frumsýndur í dag, laugardag Volkswagen kynnir nú til sögunnar þriðja afbrigði þessa vinsæla bíls - Passat CC, sem er sérlega glæsilegur. Í boði verða 140, 160 og 300 hestafla bensínvélar og 140 og 170 hestafla TDI dísilvélar.
Yfirbygging bílsins er með algjörlega sjálfstæðri hönnun og að innan er hann með sportlegum sætum, aflrás sem virkilega kveður að og tæknibúnaði, sem sæmir að öllu leyti bíl í lúxusflokki.
Dæmi um nýjungar sem eru fáanlegar í Volkswagen Passat CC eru akreinavari, sem grípur sjálfvirkt inn í stýringu á bílnum þegar búnaðurinn skynjar að bíllinn gæti sveigt af akrein, án þess að ökumaður ætli sér það, fjöðrunarstýring með aðlögun, sem lagar sig stöðugt að vegi og akstursskilyrðum, loftfrískun í sætum, ContiSeal hjólbarðar, sem loka sjálfkrafa götum sem myndast af völdum oddhvassra hluta og svo mætti lengi telja.
Sýningin hófst kl. 10:00 í dag, laugardaginn 30. ágúst, í sýningarsal Volkswagen, HEKLU-húsinu, Laugavegi 174, kl. og stendur yfir til kl. 16:00.
Jafnframt eru til sýnis glæsilegar bifreiðar, sem notaðar verða við heimsfrumsýningu á nýjum Volkswagen Golf hér á Íslandi í september. Má þar nefna Pheaton, Passat R36, Eos, Touareg R50 og Multivan Business Edition.
|
| 11/07/2008 I Fyrirtækið I Viðurkenningar Volkswagen vinnur Gullna olíudropann 2008 Þýski bifreiðaklúbburinn Kraftfahrer-Schutz e. V. (KS) veitir þessi verðlaun á sviði orku- og umhverfismála á hverju ári. Verðlaunin veitir klúbburinn fyrir framfarir í fólksbílum sem metnar eru sem mikilsvert framlag til samdráttar í eldsneytiseyðslu og verndun umhverfisins.
Að mati dómnefndar búa þessar tvær tækninýjungar frá Volkswagen yfir snjallri samtvinnun sem saman stuðla markvert úr eldsneytiseyðslu og útblæstri. Í niðurstöðum dómnefndar var lögð áhersla á að tækni Volkswagen er til staðar í fjölda gerða bíla frá framleiðandanum, allt frá minnstu gerðum og upp í millistærðarbíla.
Í dómnefnd Kraftfahrer-Schutz e.V. bifreiðaklúbbsins sitja sjálfstæðir sérfræðingar úr ýmsum greinum, þar á meðal vísindamenn, verkfræðingar, blaðamenn og stjórnmálamenn. Verðlaunin voru afhent í Munchen og veitti Dr. Tobias Loesche-ter Horst, yfirmaður forhönnunardeildar bensínvéla hjá Volkswagen, þeim viðtöku.
Þetta er í fimmta sinn sem Volkswagen hlýtur þessi verðlaun. Áður höfðu til dæmis Golf Ecomatic fengið verðlaunin 1994 og þriggja lítra Lupo árið 1996.
Samspil 90 kW TSI-vélarinnar og nýja 7 þrepa DSG, (tvíkúplandi gírkassi), getur af sér mikla kosti. Verulega dregur úr eldsneytiseyðslu sem og útblæstri. Golf, sparneytnasti bíllinn í sínum flokki, eyðir einungis 5,9 lítrum á hverja 100 ekna kílómetra og losun koltvísýrings er 139 gr/km. Miðað við sambærilega forvera bílsins með sjálfskiptingu er eldsneytiseyðslan um 20% minni, (7,6 lítrar/100 km í stað 5,9 lítra/100 km nú). Um leið hefur snúningsvægi við meðalsnúningshraða aukist um 60 prósent.
|
| 11/04/2008 I Nýjungar I Væntanlegur í sölu Passat CC væntanlegur til landsins í haust Með því að smella á hlekkinn hér fyrir neðan geturðu kynnt þér bílinn nánar á erlendum örvef. Áhugasamir geta skráð sig á vefnum og fengið kynningarefni um bílinn. |
| 04/03/2008 I Sýningar I Frumsýningar Golf United. Best búni Golfinn frá upphafi Réttborinn arftaki. Í Golf tvinnast saman hágæðahönnun, framúrskarandi aksturseiginleikar og nýstárleg tækni í drifrás. Dæmigerð lögun á c-pósti, kraftalegur afturhluti, áberandi sportlegur framendi og kraftalegar línur í bílnum gefa skýr fyrirheit um yfirburða aksturseiginleika bílsins. Raunar er í nýjum Golf mesta sjónræna og tæknilega breytingin sem orðið hefur á milli kynslóða frá því bíllinn var fyrst kynntur. |
| 08/02/2008 I Sýningar I Frumsýningar Frumsýning á Volkswagen Tiguan Tiguan. Hann breytir öllu Tiguan hefur sérstöðu í flokki jepplinga, er hlaðinn staðalbúnaði, hefur mestu dráttargetu í sínum flokki og leggur sjálfur í stæði. Tiguan býðst í þremur útfærslum Sport & Style, Track & Field og Trend & Fun. Allar gerðir eru fáanlegar með sjálfskiptingu og TDI dísilvél. |
| 18/10/2007 I Fyrirtækið I Sala 8,2% söluaukning á heimsvísu fyrstu níu mánuði ársins Volkswagen afhenti 8,2% fleiri bíla til viðskiptavina út um allan heim á fyrstu níu mánuðum þessa árs í samanburði við sama tímabil í fyrra. Alls seldust 2,73 milljónir VW bíla frá janúar til loka september, þar af 327.000 í september mánuði einum sem er 7,6% aukning miðað við september 2006. „Með óvenju breiðu úrvali bílgerða stefnir hraðbyri í að við setjum nýtt sölumet á þessu ári sem er yfir 3,5 milljónir bíla,” segir Dr. Martin Winterkorn, stjórnarformaður Volkswagen. Hann bætti því við að Volkswagen myndi styrkja enn frekar samkeppnisstöðu sína og aðdráttarafl framleiðslunnar með nýju slagorði fyrirtækisins: “Volkswagen – Das Auto.”
|
| 10/10/2007 I Fyrirtækið I Umhverfið Umhverfisstefna Volkswagen hlýtur alþjóðlega viðurkenningu Leiðandi staða Volkswagen „Viðurkenningarnar staðfesta leiðandi stöðu Volkswagen í umhverfismálum þegar kemur að endurvinnslu á bifreiðum," sagði Dr. Ulrich Hackenberg við þetta tækifæri en hann ber ábyrgð á þróunardeild fyrirtækisins. Hann segir framsækna endurvinnslu lengi hafa verið hluta af framleiðsluferlinu hjá Volkswagen. Á síðasta ári fékk Volkswagen „Evrópsku viðskiptalífsverðlaunin á sviði umhverfismála" auk umhverfisverðlauna sem Samtök iðnaðarins í Þýskalandi veittu fyrirtækinu fyrir brautryðjendastarf við endurvinnslu bifreiða. |
| 02/07/2007 I Fyrirtækið I Tónlistarviðburðir Barbara Streissand í Volkswagen Stuðningur Volkswagen við tónleikahaldið fólst í flota af glæsibifreiðum, Passat BlueMotion og Polo Bluemotion, sem notaðir voru í þágu listamannsins og starfsliðs hennar. Tónleikaferð Streissand um Evrópu hófst í Róm og hún hélt auk þess tónleika í Vín, París, Nice, Dublin og London. |
| 02/07/2007 I Fyrirtækið I Sala Ungir bílkaupendur í Bandaríkjunum hrífast af Volkswagen Volkswagen er eini bílaframleiðandinn á lista yfir tólf virtustu vörumerki hinnar svonefndu Y-kynslóðar. Önnur vörumerki á listanum eru meðal annars Apple, Adidas og Levi’s. Markhópur Volkswagen í Bandaríkjunum er ungt fólk. Ógiftir einstaklingar á þrítugsaldri með gildismat sem er í samræmi við stefnu Volkswagen eru til að mynda helstu kaupendur Jetta og Golf. |
|