|
|
Passat.
| Passat Bíll Ársins 2012Volkswagen Passat Metan hlaut afgerandi kosningu sem Bíll ársins þetta árið hjá bílablaðamönnum. Í umsögn þeirra um bílinn kemur fram að hann býr að flestum þeim kostum sem prýtt getur nýjan bíl. Til hans er vandað í hvívetna og smíði hans greinilega með því besta sem gerist. Passat Metan er rúmgóður bíll, þægilegur í notkun, vel búinn og veitir fólki sem í honum er mikla vernd ef slys hendir. Passat er verksmiðjuframleiddur metanbíll sem ekki er breytt eftirá. Hann er drifinn áfram af innlendum orkugjafa auk þess að búa að hámarksöryggi vegna hins umhverfisvæna orkugjafa. Passat Metan er á mjög góðu verði og nýtur vörugjaldsleysis vegna orkugjafans. Passat er góður í akstri og með aflmikla en sparneytna vél og hann kemst óvenju langt á tankfylli. |
"The Force" - Auglýsing frá Lucas FilmLucas Film framleiddi hina gríðalega vinsælu auglýsingu um nýjan Passat sem frumsýnd var á Superbowl í Bandaríkjunum í febrúar 2011. Þessi auglýsing hefur verið til sýnis í kvikmyndahúsum Senu um nokkra mánaða skeið hér á landi. Hægt er að horfa á auglýsinguna með því að smella hér | |
| Passat Variant: Minnsta verðfallið í stærðarflokknum.Í ársfjórðungslegri skýrslu evrópsku bílgreinasambandanna, Eurotax Schwacke (3/2005), var Passat Estate valinn sigurvegari í stærðarflokknum fyrir útlit og innanrými. Jafnframt kom í ljós að hann verðfellur minnst allra bíla í samanburðarflokknum. Auk þess nefndi Eurotax Schwacke hann sem bestu kaupin í flokki skutbíla í efri millistærðarflokki. |
Premium símkerfiNotkun bílsíma er gerð notendavænni í Passat en nokkru sinni áður. “Premium”-símkerfið, sem er aukabúnaður, framkvæmir allar símaaðgerðir með blátannartengingu. Ökumaðurinn þarf því ekki að líta af veginum á meðan. Kerfið skynjar SIM-kortið í farsíma um leið og bíllinn er ræstur og tengist honum sjálfvirkt. Þegar að öllu er gætt býður “Premium”-símkerfið upp á öll þægindi og kosti fasttengds bílsíma. | |
| Hamingjusamir farþegarRSE-afþreyingarkerfið frá Volkswagen Individual gerir ferð í aftursætum Passat og Passat Estate að sannkallaðri kvikmyndaupplifun. Þessi hátæknivæddi búnaður felur í sér einn eða tvo 7” TFT litaskjái sem eru innbyggðir í aftanverða hnakkapúða framsætanna, DVD-spilara í hanskahólfinu, fjarstýringu, tvenn heyrnartól og tengingu fyrir önnur jaðartæki, eins og iPod eða upptökuvél. Það gerir bíltúrinn að hreinni skemmtun að geta hlustað á tónlist, horft á kvikmyndir eða spilað í Playstation. |
Passat Variant. Fallegur og rúmgóður.Velgengnin heldur áfram. Með nýjum Passat Estate kynnir Volkswagen til sögunnar nýja kynslóð eins vinsælasta skutbíls sögunnar. Bíllinn býður upp á óviðjafnanlega akstursupplifun með þægindum og mikilli tækni. Passat Estate hefur áberandi útlínur, ómótstæðilegt innanrými og ríkulegan búnað jafnvel í grunngerðinni. Í Passat Estate samtvinnast fullkomið notagildi og töfrandi útlitshönnun. |
| Fimm stjörnur fyrir öryggiPassat fékk fullt hús stiga, fimm stjörnur, í Euro NCAP árekstrarprófuninni fyrir varnir fyrir farþega. Prófunin staðfestir að vel er hugað að öryggi fullorðinna og barna í Passat, ekki síst vegna farþegarýmis sem er sterkbyggt og traust. Enn frekara farþegaöryggi felst í bílbeltabúnaði bílsins og skynrænum, virkum öryggisbúnaði eins og ESP og ACC (hraðastilli með aðlögunarhæfni). Passat er fjórði bíll Volkswagen í röð sem fær fimm stjörnur í árekstrarprófun Euro NCAP. En ein sönnun þess að Volkswagen setur markið hátt þegar kemur að öryggi. |
|