HeimIHafðu sambandIVeftré
Nýr Polo.

Nýr Polo.

Hann sker sig úr fjöldanum. Nýr Polo.

Hann sker sig úr fjöldanum. Nýr Polo.

+
Ber með sér eigin þokka

Ber með sér eigin þokka

Það er ekki alltaf gefið að fagurt útlit og áreiðanleiki fari saman. Í nýjum Polo er þetta tvennt samofið og raunar staðalbúnaður bílsins. Vegna hinna þekktu Volkswagen gæða áttu í vændum að geta notið þeirrar ánægju lengi að aka í Polo. Polo ber með sér eigin þokka. Hann er viðurkenning á lífsstíl.

+
Mikið afl, lítil eldsneytiseyðsla: Nýja TSI vélin

Mikið afl, lítil eldsneytiseyðsla: Nýja TSI vélin

Meiri snerpa, minni eldsneytisþörf, minni koltvísýringur í útblæstri. Nýi 1.2 lítra TSI hreyfillinn í Polo er í öllu tilliti í fremstu röð. Með forþjöppu og strokkinnsprautun afkastar hann 77 kW (105 hö.) og knýr bílinn í 190 km hraða á klst. en eyðir þó aðeins 5.3 lítrum af eldsneyti að meðaltali á hverja 100 km. Auk þess nýtur umhverfið góðs af, þar sem magn CO2 í útblæstrinum er aðeins 124 gr./km. Til að byrja með verður þessi nýja vél fáanleg með 6 gíra beinskiptum gírkassa.

Til fyrirmyndar: Nýju BlueMotion gerðirnar

Til fyrirmyndar: Nýju BlueMotion gerðirnar

Nú er Volkswagen að hleypa af stokkunum nýjum gerðum sem eru táknrænar fyrir kröfur framtíðarinnar. Á alþjóða bílasýningunni í Frankfurt voru BlueMotion gerðirnar Polo, Golf og Passat frumkynntar en allar eiga þær sameiginlegt að vera heimsins sparneytnustu bílar, hver í sínum stærðarflokki. Þessi árangur hefur náðst meðal annars með margþættum breytingum á rafrænum stjórnbúnaði fyrir hreyfil og gírkassa.

+
Nýr Polo: Sigurvegari í bílaprófum

Nýr Polo: Sigurvegari í bílaprófum

Bílatímaritið AutoBild hefur fært óyggjandi sönnur á að með Polo BlueMotion hafa nú verið ruddar nýjar brautir í bíltækni. Við prófun reyndist nýi Polo vera hlaðinn búnaði á sviði nýtækni og skaut þar með keppinautunum aftur fyrir sig. Samkvæmt áliti AutoBild er hér ekki eingöngu um að ræða „sæti í hæsta gæðaflokki" og „nákvæman, lipran stýrisbúnað," heldur er einnig talað um „framúrskarandi hemla og gírkassa ásamt hárnákvæmri stöðugleikastýringu." Og svo er bætt við „vandaður frágangur" og „mikilvirkur bíll". AutoBild klikkir svo út með því að segja "úrvals vara, hvernig sem á er litið."

© Volkswagen 2008IImprintILegal Statement